Skip to main content

Number of people

Download as PDF
BBQ-Oumph

BBQ-Oumph

með krydduðum hrísgrjónum, bökuðu grænmeti og ananas

Prep time

5 min

Total time

40 min

Instructions

Vinsamlegast lesið í gegnum uppskriftina áður en hafist er handa.
Verði ykkur að góðu og gangi ykkur vel að elda rétt.

Prep step

Hitið ofn í 200°C.

Main tools needed

Eldfast mót eða ofnplata, panna og pottur.

1

Skerið grænmeti

Skerið kúrbít og papriku í bita. Skerið hýði af ananas ásamt trénaða hlutanum í miðjunni. Skerið því næst í bita. Sneiðið rauðlauk í 4-6 fleiga. Setjið í skál og veltið upp úr smá olíu og salti.

2

Bakið grænmeti og ananas

Setjið í eldfast mót eða á bökunarpappírsklædda ofnplötu. Bakið í forhituðum ofni í 25-30 mín.

3

Sjóðið hrísgrjón með kryddblöndu

Setjið 180 ml af vatni í pott með smá salti. Látið suðu koma upp og bætið þá við hrísgrjónum og lauk kryddblöndu. Lækkið hitann á lága stillingu og látið krauma undir loki í 13 mín. Takið því næst af hitanum og látið bíða undir loki í 10 mín.

4

Steikið oumph

Hitið olíu á pönnu á meðalhita og steikið oumph þar til það er heitt í gegn.

5

Berið fram

Blandið saman krydduðum hrísgrjónum, bökuðu grænmeti og ananas ásamt oumph. Toppið með aioli.

Hráefni sem þú færð afhend
300 g
Oumph! Bbq
120 ml
Hrísgrjón
270 g
Ananas - ferskur
170 g
Kúrbítur
1 Piece/s
Rauð paprika
1 Piece/s
Rauðlaukur
75 ml
Vegan aioli
7.5 ml
Lauk kryddblanda
Þú þarft að eiga heima
Olía
Sjávarsalt
Pipar