Þessar heita "Michelin kjötbollur" í húsum Eldum rétt. Kjötbollur eru klassískur norrænn matur og hafa borist hingað til lands frá Danmörku, aðallega. Sænskar og danskar kjötbollur eru frægar um allan heim og má meðal annars finna veitingastaði í suðrænum löndum sem byggja á sölu þessara margfrægu bolla. Þessar hér eru kenndar Svíum og eru auðvitað algert lostæti. Egg í deiginu gerir bollurnar þéttari og matarmeiri. Þetta er sáraeinföld uppskrift en gífurlega góð. Sósan sem verður til á þennan einfalda hátt er týpísk kjötbollusósa - alveg eins og hún á að vera og alveg ómissandi, svo ekki sé nú minnst á sultuna. Góð lyst!
Nánar um réttinn
Heildartími
30–40 minNæringarupplýsingar
Orka
1079 kkal
Fita
67 g
þar af mettuð
26 g
Kolvetni
71 g
þar af sykurtegundir
31 g
Trefjar
7 g
Prótein
45 g
Salt
1 g
Orka
168 kkal / 702 kJ
Fita
10 g
þar af mettuð
4,1 g
Kolvetni
11 g
þar af sykurtegundir
4,9 g
Trefjar
1,0 g
Prótein
7,0 g
Salt
< 0.5 g
Þessi hráefni fylgja með
Nauta og grísahakk
Egg
Brauðraspur
Laukur
Rjómi
Kartöflur
Salatblanda
Kirsuberjatómatar
Svínakraftur
Týtuberjasulta
Sósujafnari
Þú þarft að eiga
Mjólk
Flögusalt
Innihaldslýsing
Kartöflur (28%), nauta og grísahakk (27%), RJÓMI (13%) (MJÓLK), týtuberjasulta (8%) (sykur, týtuber, vatn, hleypiefni (E440), sýra (E330), rotvarnarefni (E202, E211)), laukur (8%), kirsuberjatómatar (6%), EGG (4%), brauðraspur (3%) (HVEITI, HVEITIKlÍÐ, salt, ger), salatblanda (3%) (lambhagasalat, íssalat, rauðrófublöð), sósujafnari (HVEITI, pálmafita), svínakraftur (salt, jurtafita (pálma, shea), gerþykkni, sterkja, sykur, beikon (svínafita og kjöt, salt, þráavarnarefni (rósmarínkjarni)), karamellusíróp, laukduft, maltódextrín, bragðefni, krydd og kryddjurtir (m.a. steinselja og SELLERÍ), reykbragðefni).
Hætta er á að aðrir ofnæmisvaldar fyrirfinnist vegna smithættu frá öðrum afurðum við pökkun.