Birria Tacos
Bragðbombur með sögulegar rætur
Birria er hægelduð kjötmáltíð í ríku og krydduðu chili-soði og á uppruna sinn í Jalisco-héraðinu í Mexíkó. Birria var upphaflega gerð úr geitakjöti. Í taco útgáfunni er tortillum dýft í fitu áður en þær eru steiktar og fylltar með safaríku kjöti. Í okkar útgáfu notum við nautakjöt, hægeldað þar til það rifnar í vönduðum maís tortillum með bræddum osti. Það er fátt betra en að dýfa taco’inu í soðið og njóta svo!
Kjúklingatacos
Achiote marinering og heimalagað salsa verde
Achiote er mauk búið til úr fræjum annatto-plöntunnar, og hefur verið notað í mexíkóskri matargerð í aldaraðir. Það gefur ekki aðeins ljómandi rauð-appelsínugulan lit heldur einnig milda og jarðkennda bragðnótu sem tengist beint rótum Maya menningarinnar. Achiote er oft notað í marineringar, kjötkássur og klassískan Yucatán rjómakjúkling. Við toppum kjúklingataco-inn með heimalgöðuðu salsa verde úr tomatillos, poblano pipar, jalapeno og kóríander, kryddaðri chili-majó og fersku rauðkáli fyrir stökka áferð og ferskleika.
Elote maís
Ein vinsælasta götumáltíð Mexíkó
Elote, eða grillaður maís, er ein allra vinsælasta götumáltíðin í Mexíkó. Maísstönglar eru grillaðir yfir opnum loga, penslaðir með majónesi, stráð yfir þá ferskum myljanlegum osti, Tajin og að lokum er límóna kreist yfir til að setja punktinn yfir i-ið. Þetta er einfaldur en jafnframt alveg ómótstæðilega góður réttur, tilvalinn sem meðlæti með tacos.
Tres Leches
Hinn fullkomni eftirréttur
Við endum þessa mexíkósku veislu með Tres Leches köku – dásamlega létta svampköku sem er lögð í blöndu af þremur mjólkurtegundum: evaporated milk, condensed milk og rjóma. Tres Leches á sér uppruna í Mið- og Suður-Ameríku en hefur sérstaklega sterkar rætur í Mexíkó. Hún er létt, blaut og silkimjúk, og í okkar útgáfu bætum við við ferskum jarðarberjum fyrir enn meiri sætu og ferskleika.