Skip to main content

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2019

annað árið í röð!

Eldum rétt er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri annað árið í röð að mati Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Að þessu sinni erum við í hópi 2,7% fyrirtækja á Íslandi sem hlutu þessa nafnbót. Viðurkenningin endurspeglar þann góða árangur sem náðst hefur þökk sé okkar frábæra starfsfólki.

Til þess að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir fyrirmyndartæki í rekstri þurfa fyrirtæki að hafa skilað ársreikningi og uppfylla ýmis skilyrði. Tekjur þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna á rekstrarárinu 2018, eignir umfram 80 milljónum og afkoman þarf að hafa verið jákvæð. Þá þarf eiginfjárhlutfallið að hafa verið yfir 20%. Auk þessa er tekið tillit til rekstarársins 2017 og annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.

Við erum afskaplega stolt af þessari viðurkenningu sem hvetur okkur til að halda áfram og gera enn betur.